Í ljósi frétta af því að Íslendingar hafi orðið fyrir óþægindum eða ósanngjarnri meðferð erlendis, vegna ástandsins í efnahagsmálum, óskar utanríkisráðuneytið eftir staðfestum upplýsingum um slík tilvik.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Þar kemur fram að ráðuneytið leggi ríka áherslu á að fá upplýsingar frá fyrstu hendi og eru viðkomandi hvattir til að senda tölvupóst á netfangið [email protected] um tilgreind atvik.

„Markmið ráðuneytisins með þessu er að safna saman upplýsingum um atvik af þessu tagi til þess að hægt sé að fá skýra mynd af þeim vandamálum sem að almenningi steðja erlendis í beinum tengslum við núverandi aðstæður og bregðast við eftir atvikum,“ segir í tilkynningunni.