Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samkomulag um samstarf ráðuneytisins og Alþjóðamála-stofnunar HÍ á sviði fræðslu og rannsóknarstarfa í alþjóðamálum. Leggur utanríkisráðuneytið 3 milljónir króna til stofnunarinnar árið 2008 auk launa 2 starfsnema 3 mánuði í senn.

Ætlunin með samningnum, sem er til eins árs, er að efla samstarf og samvinnu ráðuneytisins og Alþjóðamála-stofnunarinnar, efla umræðu og þekkingarmyndun á sviði alþjóðamála á Íslandi og auka rannsóknavinnu á þeim vettvangi. Vonast er til að þessi samningur muni nýta enn betur þá þekkingu sem er til staðar í utanríkisráðuneytinu og í Háskóla Íslands og að hann opni nýjar leiðir í rannsóknarvinnu.

Samningurinn felur í sér að Alþjóðamálastofnun HÍ komi ráðuneytinu til aðstoðar með skipulagningu ráðstefna og málþinga um alþjóðamál og að starfsfólk, kennarar og fræðimenn á vegum stofnunarinnar komi að námskeiðum og fyrirlestrum fyrir starfsfólk ráðuneytisins og öfugt.

Utanríkisráðuneytið mun aðstoða við rannsóknir stofnunarinnar og býður nemendum í meistaranámi í alþjóðasamskiptum við HÍ námsaðstöðu og aðgang að starfsfólki vegna rannsóknarverkefna. Auk þess mun ráðuneytið meta þörf fyrir starfsnema og felur Alþjóðamálastofnun að auglýsa lausar stöður og annast úrvinnslu umsókna.