Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að 2. útboð sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu muni fara fram árið 2011 á tímabilinu 1. ágúst til 1. desember.

„Síðustu mánuði hefur Orkustofnun verið í sambandi við olíufélög sem sýndu fyrsta útboði til olíuleitar á Drekasvæðinu áhuga en sóttu ekki um.  Einnig hefur verið rætt við forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem sóttu um rannsóknar- og vinnsluleyfi en drógu umsóknir sínar til baka. Í samskiptum við þessi fyrirtæki hafa ýmsar ábendingar komið fram sem gagnlegar eru í undirbúningi fyrir framhald leyfisveitinga til olíuleitar á Íslandi.

Undirbúningur að sýnatöku botnsets á Drekasvæðinu  stendur nú yfir á vegum stjórnvalda. Stefnt er að því að setkjarnar af yfirborði hafsbotnsins verði teknir á völdum stöðum á svæðinu í sumar. Greiningar á olíu- og gasinnihaldi þeirra geta varpað skýrara ljósi á  móðurberg og myndunarskilyrði olíu á svæðinu sem dregur úr óvissu og  auðveldar ákvarðanatöku hjá væntanlegum þátttakendum í útboðinu," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.