Skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar í skuldabréfaflokknum RVK 09 1, sem fara átti fram nú á fimmtudag, hefur verið frestað um viku. Í tilkynningu til kauphallar segir að útboðið muni þess í stað fara fram vikuna 20.-24. júní og að útboðsskilmálar verði óbreyttir.