Íslandsbanki hf. lauk í gær útboði á fjórum víxlum til 2,3,5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 2 mánaða víxillinn var boðinn út á 6,00% flötum vöxtum (verð: 99,1899), 3 mánaða víxillinn á 6,10% flötum vöxtum (verð: 98,4650), 5 mánaða víxillinn á 6,25% flötum vöxtum (verð 97,6106) og 6 mánaða víxillinn á 6,30% flötum vöxtum (verð: 96,8969). Þetta kemur fram í fréttatilkynningu bankans.

Tilboðum var tekið í 2 mánaða víxilinn að fjárhæð 310.000.000 krónur að nafnvirði, að fjárhæð 920.000.000 krónur að nafnvirði í 3 mánaða víxilinn og að fjárhæð 300.000.000 krónur að nafnvirði í 6 mánaða víxilinn.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 27. júní næstkomandi.