Hlutafjárútboð Mosaic Fashions hf. stendur nú yfir en því lýkur í dag klukkan 17:00. Síðari hluta júnímánaðar er fyrirhugað að skrá hluti félagsins á Aðallista Kauphallar Íslands. 90.661.831 nýr hlutur er boðinn almenningi á genginu 13,6 krónur fyrir hvern hlut, samtals að andvirði 1.233.000.902 króna. Lágmarksáskrift er að andvirði 100 þúsund króna og hámarksáskrift 30 milljónir króna.

KB banki sölutryggir útboðið að fullu á útboðsgengi.