Upphaflega stóð til að frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingar á hlutafélagalögum útfærði frekar kynjakvótana sem taka gildi í september næstkomandi, sem virðist ekki hafa náð fram að ganga, að því er segir í frétt á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands . Þess í stað eru ákveðnar breytingar lagðar fram til að bæta ársreikningaskil og um hækkun á lágmarkshlutafé.
Í fréttinni segir að ráðið hafi lagst gegn hækkun lágmarkshlutafjár og bent máli sínu til stuðnings á að greitt aðgengi að stofnun fyrirtæki væri hluti af samkeppnishæfni landsins. Þá sýni úttekt Alþjóðabankans, Doing business, að lágmarkið er ekki óvenju lágt í alþjóðlegum samanburði.