Útfararþjónustan ehf. hagnaðist um 15,1 milljón króna á síðasta ári, en þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins. Hagnaður fyrirtækisins jókst um næstum 1,5 milljónir króna á milli ára.

Rekstrarhagnaður Útfararþjónustunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 21,5 milljónum króna á árinu og dróst saman um 300 þúsund krónur á milli ára.

Eignir fyrirtækisins námu 71,5 milljónum króna í lok ársins, en þar af námu fasteignir fyrirtækisins 34,1 milljón króna og handbært fé 20,7 milljónum króna. Skuldir voru 17 milljónir króna og nam eigið fé fyrirtækisins því 54,5 milljónum króna í árslok.

Útfararþjónustan ehf. er í fullri eigu Rúnars Geirmundssonar.