Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst á milli áranna 2014 og 2015 um 7,8%, en þau voru 265 milljarðar króna á árinu 2015 miðað við 244 milljarðar árið áður.

Magnið dróst hins vegar saman en árið 2015 voru flutt út 632 þúsund tonn en 654 þúsund tonn árið áður.

Samdráttur útflutningsframleiðslu

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða dróst saman um 6% frá fyrra ári, en þar er um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Dróst framleiðslan mæld á föstu verðlagi saman um 4%.

Var um helmingur heildarútflutningsverðmætisins frystar afurðir, þar af var verðmæti frysts þorsk um 35,6 milljarðar. Verðmæti ísaðs þorsk var um 34,4 milljarðar.

Um 75% heildarútflutnings sjávarafurða voru seld til Evrópu, 9,6% til Asíu og 8% til Norður-Ameríku.