Aldrei fyrr hefur virði útflutnings frá Íslandi verið meiri en í liðnum mánuði, eða alls vörur fyrir 39,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands.

Á sama tíma voru fluttar inn vörur fyrir 39,9 milljarða króna, í maí sem er lítillega minni innflutningur en í aprílmánuði, og er vöruskiptahallinn því einungis um 600 milljónir í maí sem er töluverður bati frá fyrri mánuði þegar hann var 7,3 milljarðar króna.

Hátt verð á áli og sjávarfangi þungvægt

Mikil aukning í útflutningi kemur til vegna stóraukins útflutnings á áli og vegur þar þyngst að framleiðsla Alcoa í Reyðarfirði er komin á fullan skrið. Þetta helst í hendur við að heimsmarkaðsverð á áli er hátt um þessar mundir.

Útflutningur sjávarafurða er einnig mikill en dregst þó lítillega saman frá fyrri mánuði þegar útflutningsvirði sjávarafurða náði sögulegu hámarki. Verð sjávarafurða er með hærra móti auk þess sem lágt gengi íslensku krónunnar hefur góð áhrif á afkomu sjávarútvegsins.

Mikið flutt inn af mat og drykk

Innflutningur vöru var einnig með mesta móti í maí. Innflutningur á hrá- og rekstrarvörum eykst jafnt og þétt og munar þar mestu um aukinn innflutning á áloxíði.

Innflutningur á mat- og drykkjarvörum er með mesta móti og ljóst að lágt gengi krónunnar eykur innflutningsvirði á nauðsynjavarningi töluvert.

Innflutningsvirði varanlegra og hálf-varanlegra neysluvara dregst nú saman eftir að hafa aukist fyrst eftir gengisfall krónunnar í mars sl.