Alls voru framleidd 29.870 tonn af kjöti árið 2015 sem er 1,9% meira en árið 2014. Mest var framleitt af lamba- og kindakjöti eða 10.200 og næst mest af alifuglakjöti, eða 8.300 tonn. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Útflutningur á kjöti dróst saman 19,5% á meðan innflutningur jókst um 1,8%. Alls voru flutt út 3.852 tonn af kjöti árið 2015 samanborið við 4.783 tonn árið 2014. Útflutningur á lamba- og kindakjöti nam 2.947 tonnum og dróst saman um 14,3% á milli ára. Útflutningur á hrossakjöti dróst saman um 33% og á svínakjöti um 32%. Alls voru flutt inn 2.563 tonn af kjöti árið 2015 samanborið við 2.517 tonn árið 2014. Innflutningur á nautgripakjöti nam 1.045 tonnum, svínakjöti 598 tonnum og alifuglakjöti 920 tonnum.

Kjötneysla á íbúa var 83,8 kíló árið 2015. Mest var neysla af alifuglakjöti, eða 27,6 kíló,  næst mest af svínakjöti eða 21 kíló og 19,5 kíló af lamba- og kindakjöti. Svínakjötsneyslan var í þriðja sæti árið áður, en er nú meiri heldur en af lamba- og kindakjöti.