Árið 2004 voru vörur fluttar út til Rússlands fyrir 2,3 milljarða króna en á árinu 2014 var útflutningurinn kominn í 29,2 milljarða króna á gengi hvors árs eða 4,9% af heildarútflutningi. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Þar segir að vöruútflutningur til Rússlands hafi margfaldast síðustu ár.  Stærsti hluti útflutnings til Rússlands sé uppsjávarfiskur, aðallega makríll og síld, og fari um þriðjungur af heildarútflutningi á uppsjávarfiski á árinu 2014 til Rússlands. Innflutningur frá Rússlandi hafi hins vegar haldist frekar stöðugur og var 3,1 milljarðar á árinu 2014. Mest var flutt inn af olíu og álblendi.

Vöruskiptajöfnuður við Rússland var því hagstæður um rúma 26 milljarða á árinu 2014 en var óhagstæður um 407 milljónir á árinu 2004.

Hagstofan tekur fram, varðandi áreiðanleika talnanna, að útflytjendum beri að greina frá því í tollskýrslum hvar varan endi. Hagstofan byggi sínar tölur á þeim upplýsingum. Til að draga úr óvissu í þessum efnum hafi stofnunin hafið rannsókn á nákvæmni upplýsinga um endanlega ákvörðunarland útflutnings í tollskýrslum. Sú rannsókn beinist þó ekki að Rússlandi sérstaklega heldur fremur að háu hlutfalli Hollands í útflutningsskýrslum.