News Corp mun frá og með 15. desember hætta útgáfu á The Daily sem er dagblað fyrir iPad. Slíkt dagblað er það fyrsta sinnar tegundar sem var fyrst eingöngu hægt að lesa á iPad. Síðar bættust Kindle Fire og önnur Android tæki við.

Verið er að endurskipuleggja News Corp sem mun skiptast í tvö fyrirtæki. Annað fyrirtækið, sem mun áfram heita News Corp, mun innihalda The Post, HarperCollins og Wall Street Journal sem margir þekkja. Hitt fyrirtækið, Fox Group, mun sjá um útgáfu skemmtiefnis. Þar á meðal verða Fox News, Fox Broadcasting og 20th Century Fox Films. Rupert Murdoch mun sjá um að stýra báðum þessum fyrirtækjum.