Útgáfa krónubréfa er nú komin yfir 150 milljarða króna sem er um 15% af vergri landsframleiðslu, að fram kemur í hálffimm fréttum Kaupþings banka, en alls hafa verið gefnir út 6 milljarðar króna á síðastliðnum tveimur dögum. Til að mynda gaf EIB banki út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir 3 milljarða króna í dag.