Viðskiptablaðið kom út í síðasta sinn á þessu ári í gær með hefðbundnu sniði. Með fylgir veglegt jólablað Fiskifrétta.

Á milli jóla og nýárs kemur út tímarit Viðskiptablaðsins sem tengist afhendingu Viðskiptaverðlauna blaðsins 30. desember næstkomandi.

Tímaritið Áramót er 132 síður að þessu sinni og verður sent áskrifendum Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta þeim að kostnaðarlausu.

Fyrsta Viðskiptablað á nýju ári kemur út 7. janúar nk.

Um hátíðirnar verður fréttavakt á vef Viðskiptablaðsins, www. vb.is. Skrifstofa Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta verður opin virka daga milli jóla og nýárs frá kl. 9 til 16.