James Murdoch
James Murdoch
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Ákveðið hefur verið að hætta útgáfu á sunnudagsblaðinu News of the World. James Murdoch, stjórnarformaður blaðsins, tilkynnti um þetta í dag og Sky fréttastofan greinir frá. Blaðið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir símhleranir sem eiga að hafa átt sér stað á fyrri hluta síðasta áratugar.

Síðasta blaðið kemur út næstkomandi sunnudag. Einungis auglýsingar frá góðgerðarstofnunum verða birtar í síðasta blaðinu, auglýsendum að kostnaðarlausu.