Í janúar 2016 voru 5.317 íslensk vegabréf gefin út. Útgefnum vegabréfum fjölgaði um 27,5% milli ára og 1.628 milli mánaða.

Þetta kemur fram í markaðsfrétt Þjóðskrár um vegabréf. Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja.

Hér að neðan má sjá línurit yfir útgefin vegabréf sem Viðskiptablaðið tók saman út frá gögnum Þjóðskrár.