Heildarútgjöld til félagsverndar jukust úr 210,4 milljörðum króna árið 2004 í 222,3 milljarða árið 2005 eða um 5,7% milli ára í krónum talið. Vöxtur félagsverndar var hlutfallslega mestur til málefna öryrkja eða 9% milli áranna 2004 og 2005, sem svarar til 2,7 milljarða króna. Útgjöld vegna aldraðra jukust um 7,8% eða 4,5 milljarða kr. og til heilbrigðismála jukust útgjöld um 5,6% eða 4,0 milljarða kr. Vöxtur á öðrum verksviðum var minni.

Raunvöxtur útgjalda
Útgjöld til félagsverndar (án stjórnunarkostnaðar) jukust í krónum talið um 5,6% frá árinu 2004 til 2005 á meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 4%. Þegar leiðrétt er fyrir verðlagsbreytingum er vöxtur útgjalda til félagsverndar 1,5% frá árinu 2004 til 2005. Á sama tímabili fjölgaði landsmönnum um 1,1%. Þegar tekið er tillit til mannfjöldabreytinga auk verðlagsbreytinga og útgjöld reiknuð í kr. á íbúa 2005 jukust raunútgjöld til félagsverndar milli áranna 2004 og 2005 um 0,4%. Vöxtur raunútgjalda vegna málefna öryrkja var 3,6%, vegna aldraðra var hann 2,4% og loks var raunútgjaldavöxtur á sviði heilbrigðismála 0,4%.

Hlutfall af landsframleiðslu
Útgjöld til félagsverndar sem hlutfall af vergri landsframleiðslu jukust á tímabilinu 2001 til 2003 úr 19,1% í 22,6%, en 2004 lækkaði hlutfallið lítillega, í 22,3%. Milli áranna 2004 og 2005 lækkaði hlutfall útgjalda til félagsverndar enn frekar, í 21,4% af landsframleiðslu.

Útgjöld eftir verkefnasviðum
Veigamesti málaflokkur félagsverndar hérlendis er heilbrigðismál. Til heilbrigðismála var varið um 35% heildarútgjaldanna en málefni aldraðra voru í öðru sæti með tæp 29%. Í þriðja og fjórða sæti voru útgjöld vegna örorku með rúm 15% og til fjölskyldna og barna með tæp 14%. Til allra annarra verksviða var varið alls tæplega 8% útgjaldanna.