Í nýrri skýrslu Rannís kemur fram að útgjöld ríkisaðila til rannsókna og þróunar kunna að fara yfir 11 milljarða kr. árið 2005. Það er framhald á aukningu ríkisaðila á útgjöldum í þessum málaflokki. Framlag ríkisins til rannsókna og þróunarstarfsemi í frumvarpi til fjárlaga eru rúmir 9 milljarðar kr.