Úthlutað hefur verið 2,7 milljónum króna úr Samfélagssjóði Rio Tinto Alcan á Íslandi. Er þetta síðari úthlutun ársins en jafnstórri fjárhæð var úthlutað í febrúar síðastliðnum.
Fyrirtækið leggur áherslu á að styðja við málefni sem tengjast heilbrigði, öryggi, umhverfi, menntun og menningu. Afstaða var tekin til 73 umsókna og hlutu eftirtaldir tíu aðilar styrk að þessu sinni:
1. Matarheill: kr. 500.000, til eflingar á starfsemi félagsins.
2. Hafnarfjarðarkirkja: kr. 500.000, til útgáfu á ritinu "Helgistaðir við Hafnarfjörð".
3. Félag lesblindra á Íslandi: kr. 400.000, til útgáfu fræðsluefnis og námskeiðahalds um lesblindu á vinnustöðum
4. Töfrahurð: kr. 400.000, til útgáfu á barnabókinni "Gaman að drasli" þar sem leiðbeint er um endurvinnslu
5. Annað líf / Hjartaheill: kr. 200.000, til kynningarátaks um líffæragjafir
6. Björgunarsveit Hafnarfjarðar: kr. 200.000, til kaupa á fjórhjóli
7. Foreldrarfélag Áslandsskóla: kr. 150.000, til fræðsluátaks um hreyfingu og mataræði
8. Öldungadeild Skýrslutæknifélags Íslands: kr. 150.000, til útgáfu á riti um sögu upplýsingatækni á Íslandi
9. Karlakórinn Þrestir: kr. 100.000, til almennrar starfsemi kórsins
10. Foreldrafélag Hraunavallaskóla: kr. 82.500, til merkinga á 150 endurskinsvestum með nafni og símanúmeri skólans