Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögu tónlistarráðs um úthlutun úr átakssjóði ríkisstjórnar úr Tónlistarsjóð vegna heimsfaraldurs vor 2020. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Alls bárust 540 umsóknir frá mismunandi greinum tónlistar. Sótt var um rúmar 400 milljónir króna. Til úthlutunar úr átaksverkefni tónlistar er 81 milljón króna. Veittir eru styrkir til 162 verkefna að upphæð 81 milljón og er því um 30% árangur umsækjenda.

Átta verkefni hljóta hæsta styrkinn, að upphæð 1.000.000: Agent Fresco, Barokkbandið Brák, Hatari, Pétur Sigurþór Jónsson og Ragna Kjartansdóttir, Kristjana Stefánsdóttir fyrir verkefnið Blái hnötturinn fyrir stórsveit, Tónleikaröð í Hafnarborg og óperuverkefnið Fidelio.