Hagar auglýsa eftir umsóknum í nýsköpunarsjóðinn Uppsprettuna, en umsóknarfrestur er til og með 27. apríl. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun og eru allt að 20 milljónir til úthlutunar úr sjóðnum árið 2022, að því er kemur fram í tilkynningu.

Hlutverk sjóðsins er að virkja og styðja frumkvöðla til nýsköpunar og þróunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Sjóðurinn leggur áherslu á stuðning við frumkvöðlaverkefni sem að taka tillit til sjálfbærni og styðja við innlenda framleiðslu, en nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins.

Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður nýsköpunar hjá Högum, segir nýsköpun í matvælaiðnaði mikilvæga fyrir framþróun og vöruúrval á Íslandi. Í hverri viku fá verslanir Haga til sín frumkvöðla með hugmyndir af vörum sem hafa leitt af sér stofnun nýsköpunarsjóðsins Uppsprettu, að því er kemur fram í tilkynningu.

Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður nýsköpunar hjá Högum:

„Við ætlum okkur að styðja markvisst við þær hugmyndir sem að frumkvöðlar hafa til að stuðla að sem mestri innlendri þróun á matvælum. Fyrsta úthlutun sjóðsins var í fyrra og þá fengu 11 verkefni styrk að heildarverðmæti 11 milljón króna. Fimm af þeim verkefnum eru þegar komin með vörur á markað til sölu í verslunum."