Landsbankinn hefur ákveðið að sameina afgreiðslu bankans á Hellissandi útibúinu í Ólafsvík.

Frá þessu er greint á vef Skessuhorns en samkvæmt tilkynningu verður síðasti afgreiðsludagur á Hellissandi föstudaginn 17. september.

Starfsmenn úr útibúinu á Hellissandi flytjast í útibúið í Ólafsvík og halda því vinnu sinni. Þar verða eftir sameininguna níu starfsmenn. Áfram verður hraðbanki á Hellissandi.