Útibú Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. í Kaupmannahöfn hefur í dag gerst aðili að danska innistæðutryggingasjóðnum Det Private Beredskap.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum-Burðarás í dag.
Þar kemur fram að Det Private Beredskab er sjóður sem hefur meðal annars þann tilgang að veita tímabundna innistæðutryggingu sem dönsk stjórnvöld tilkynntu um þann 6. október 2008 í því skyni að verja innistæðueigendur og almenna kröfuhafa.
Tryggingin gildir í tvö ár og felur í sér að innistæður og almennar kröfur hjá bönkum sem eru aðilar að sjóðnum eru tryggðar verði þeir gjaldþrota.
Þá kemur fram að tryggingin bætir það sem upp á vantar eftir að greitt hefur verið það sem kann að vera bætt af hinum danska Tryggingasjóði innistæðueigenda og fjárfesta (Indskydergarantifonden) og hliðstæðum tryggingum.