Nýi Kaupþing banki hefur ákveðið að loka þremur útibúum á landsbyggðinni og sameina þau öðrum. Þetta eru útibúin á Akranesi sem sameinað verður Mosfellsútibúi, í Reykjanesbæ sem sameinað verður Hafnarfirði og á Hofsósi sem sameinað verður Sauðárkróksútibúinu.

Þetta kemur fram á vef Skessuhorns en þar segir að þá hafi einnig verið ákveðið að stytta afgreiðslutíma þriggja landsbyggðarútibúa þannig að þau verði opin frá klukkan 12:30 til 16. Þetta eru útibúin í Grundarfirði, Vík og Kirkjubæjarklaustri.

Samkvæmt heimildum Skessuhorns er ástæða þessara breytinga sú að verið er að hagræða í rekstri bankans. Þarna sé verið að fella út starfsstöðvar sem hafa ekki haft markaðsráðandi stöðu á fyrrgreindum stöðum. Þá er einnig horft til þess að íbúar þessara staða hafa góðan aðgang að öðrum bankastofnunum og jafnfram stutt fyrir þá að sækja útibú í nágrannasveitarfélögum.

Sjá nánar á vef Skessuhorns.