Eftir að hafa nánast staðið í stað frá vordögum 2006 hafa útlán íslenska bankakerfisins vaxið hratt undanfarið, segir greiningardeild Glitnis.

?Gildir einu hvort um lán til fyrirtækja eða einstaklinga er að ræða. Erlend útlán uxu þó hraðar en innlend á síðustu mánuðum nýliðins árs. Samkvæmt nýbirtum tölum frá Seðlabanka námu heildarútlán bankakerfisins 3.808 milljarðar króna í árslok.

Af því námu innlend útlán og markaðsverðbréf 2.524 milljarða króna en heildarupphæð erlendra útlána og markaðsverðbréfa var 1.284 milljarðar króna. Erlend útlán jukust hins vegar um 77% milli ára meðan aukning innlendra útlána var 32% á sama tíma,? segir greiningadeildin.

Hún segir að heildarskuldir íslenskra heimila við bankakerfið hafi numið 708 milljörðum króna í árslok, en það jafngildir 30% aukningu á síðasta ári.

?Þar verður þó að hafa í huga að á fyrstu mánuðum síðasta árs voru heimilin enn í óða önn að skuldbreyta húsnæðislánum sínum, sem jók hlutdeild bankanna í þeim en minnkaði að sama skapi hluta Íbúðalánasjóðs.

Verðtryggingin á hér einnig talsverðan hlut að máli en verðbólga yfir síðasta ár var 7%. Hlutdeild gengistryggðra lána í skuldum heimilanna hefur aukist nokkuð undanfarið og nam 10,4% í árslok. Yfirdráttarlán heimila hafa hins vegar staðið í stað undanfarið ár og þar með hefur hlutfall þeirra af heildarskuldum lækkað, en þau námu alls 67 milljarða króna um áramót,? segir greiningardeildin.

Hún segir að skuldir innlendra fyrirtækja við íslenskt bankakerfi voru alls 1.705 milljarðar króna í lok 2006 og höfðu þá aukist um 43% á árinu.

?Við þetta bætist svo væntanlega að á liðnu ári var mikið um skuldabréfaútgáfur fyrirtækja. Ríflega 60% þessara skulda eru gengistryggðar og endurspeglar það að mestu leyti útrás stærri fyrirtækjanna og þá staðreynd að æ stærri hluti tekna þeirra og eigna er í erlendum gjaldmiðlum,? segir greiningardeildin.