Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í janúar námu rúmlega 4,5 milljörðum króna, sem er ríflega 6% aukning frá janúar 2007. Í frétt á vef Íbúðarlánasjóðs segir að þar af hafi tæplega 3,5 milljarðar króna verið vegna almennra útlána en leiguíbúðalán námu rúmum einum milljarði króna.

Meðallán almennra útlána var um 9,7 milljónir króna og hafa þau hækkað um tæp 12% frá fyrra mánuði. Ef miðað er við sama tíma í fyrra þá hafa meðallán almennra útlána hækkað um rúmlega 2%.