Samtals námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæplega 5,0 milljörðum króna í júní, en þar af voru rúmlega 4,1 milljarður vegna almennra útlána og tæplega 0,9 milljarðar vegna leiguíbúðalána.

Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 4% frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir júní.

Alls lánaði Íbúðalánasjóður um 14,0 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi og um 25,0 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins 2008.