Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 1,3 milljörðum króna í desember en þar af var tæpur 1,1 milljarður króna vegna almennra lána. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Til samanburðar námu almenn útlán í desember 2010 rúmum 1,7 milljörðum króna. Útlán almennra lána á árinu 2011 voru samtals um 21,5 milljarðar króna og heildarútlán um 24 milljarðar króna.

Á árinu 2010 voru útlán almennra lána samtals um 18,5 milljarðar króna og heildarútlán um 27 milljarðar króna. Meðalútlán almennra lána voru um 9,6 milljónir króna í desember 2011.