Útlit er fyrir 0,8% hækkun vísitölu neysluverðs á milli mars og apríl, segir greiningardeild Glitnis.
Verðbólgan mun mælast 5,1% gangi spáin eftir og eykst úr 4,5% frá fyrri mánuði.
Verðbólgan vex áfram og reynist fjarri efri þolmörkum í markmiði Seðlabankans, sem er 4%, og hvergi nærri 2,5% verðbólgumarkmiði hans, segir greiningardeild Glitnis.
Um er að ræða 24 mánuðinn í röð sem verðbólga reynist umfram markmið bankans.
Íbúðaverð hefur áfram talsverð áhrif til hækkunar vísitölu neysluverðs ásamt matvöruverði sem hefur hækkað að undanförnu.
Eldsneytisverð hefur einnig hækkað frá síðustu mælingu í kjölfar gengislækkunar og hækkandi heimsmarkaðsverðs.
Verðbólguþrýstingurinn eykst af þessum sökum. Óvissa spárinnar liggur fremur til hækkunar í ljósi gengislækkunar krónunnar og mikillar eftirspurnar í hagkerfinu.
Sennilega mun verðbólgan aukast enn frekar á næstunni og reikna má með að hún fari yfir 6% í maí. Afar hæpið virðist að verðbólgan fari undir efri þolmörkin í bráð.