Hlutabréfavísitölur hafa farið hækkandi í hlutabréfaviðskiptum í Evrópu fyrir opnun markaða í dag. Hækkanir eru helst raktar til afgreiðslu jfármálaráðherra evruríkjanna á næsta hluta lánafyrirgreiðslu til Grikklands.

Helstu vísitölur í Asíu hækkuðu einnig eftir að fréttir bárust um samkomulagið.