Ráðgjöf um aflamark loðnu fyrir komandi vertíð verður birt á föstudaginn.

„Leiðangri rannsóknarskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar lauk í lok síðustu viku og unnið er að úrvinnslu gagna og útreikningum,“ segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun .

„Útreikningum á niðurstöðum leiðangurs undanfarinna vikna er ekki að fullu lokið en frumniðurstöður sýna að þær væntingar sem voru um veiðar komandi vertíðar munu standast. Því er fyrir séð að Hafrannsóknastofnun mun leggja til aukningu aflamarks þegar útreikningum á stærð veiðistofnsins verður að fullu lokið.“

Upphafsráðgjöf fyrir loðnuvertíðina 2021/2022 frá í desember var sú að veiða mætti allt að 400 þúsund tonnum.

„Sú ráðgjöf var veitt á grundvelli gildandi aflareglu og byggði á mælingum á ókynþroska ungloðnu í september 2020. Þar sem mikil óvissa er um tengsl ungloðnu og veiðistofns ári síðar var um að ræða varfærna ráðgjöf,“ segir Hafró.

Stofnunin greinir einnig frá því að fimmtudaginn 30. september muni Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veita ráð um veiðar næsta árs fyrir kolmunna, makríl og norsk-íslenska síld.

Ráðgjöfin verður birt klukkan 10:00 samtímis á vef Hafrannsóknastofnunar og á vef ICES.

„Þá mun ICES birta ráðgjöf um veiðar á úthafskarfastofnum næstkomandi mánudag en um langt árabil hefur ICES lagt til bann við veiðum á úthafskarfastofnum.“