Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands, verður gestur Viðskiptaþáttarins á Útvarpi Sögu (99,4) í dag. Umræðuefnið er sú mikla breyting sem hefur orðið á fyrirtækjaumhverfi Íslendinga undanfarin ár í tengslum við alþjóðavæðingu og útrás íslenskra fyrirtækja.
Í seinni hluta þáttarins verður rætt við Atla B. Guðmundsson, sérfræðing hjá Greiningu Íslandsbanka, í tilefni áforma Mosaic Fasion um skráningu í íslensku Kauphöllina.
Viðskiptaþátturinn er sendur út á milli kl. 16 og 17 daglega og er endurfluttur kl. 01 á nóttunni. Þá eru eldri þættir aðgengilegir hér á vefnum.