Útsölur hefjast af fullum krafti um helgina og hefjast þær til að mynda í Kringlunni og í Smáralindinni á morgun, laugardag.

Gera má ráð fyrir því að til að byrja með verði veittur um 20 til 50 prósenta afsláttur.

Erla Pálsdóttir, markaðsfulltrúi Kringlunnar, segir að útsalan í Kringlunni standi til 8. febrúar. Hún segir hefð fyrir því að útsölur hefjist ekki fyrr en eftir jól.

Einstakar verslanir hefja þó útsölur í dag, eins og til dæmis Debenhams.