Nýr meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og VG var kynntur við Breiðholtslaug kl. 10.30 í morgun en það voru oddvitar flokkanna, Dagur B. Eggertsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Líf Magneudóttir sem kynntu samstarfssáttmálann sem flokkarnir hafa gert með sér fyrir komandi kjörtímabil.

Ný borgarstjórn tekur við á borgarstjórnarfundi sem haldinn verður þriðjudaginn 19. júní. Meðal þeirra mála sem fram koma í nýjum meirihlutasáttmála flokkanna er að útsvarið verði óbreytt en ekki má hækka það meira en nú er. Jafnframt verður allur Laugarvegurinn lokaður allt árið um kring fyrir bílaumferð.

Viðskiptablaðið greindi frá því í morgun að Dagur verður áfram borgarstjóri . Samkvæmt tilkynningu frá meirihlutanum segir að umhverfismál, jafnréttismál, lýðræði, samfélag fyrir alla, þjónusta borgarinnar, húsnæðismál og borgarlína verði meginatriði hjá nýjum meirihluta.

Farið var yfir helstu atriði samstarfssáttmála flokkanna en í upphafsorðum sáttmálans segir:

„Við sem myndum meirihluta borgarstjórnar höfum sammælst um að gera góða borg betri. Við ætlum að byggja öflugt og þétt borgarlíf fyrir okkur öll með nægu framboði af húsnæði, sjálfbærum hverfum, heilnæmu umhverfi, skilvirkum samgöngum, fjölbreyttu atvinnulífi og einfaldri, aðgengilegri og lýðræðislegri umsýslu,“ segir í sáttmálanum.

„Við ætlum að auka lífsgæði fólks og búa til borg þar sem það er gott að vera og gera. Við sem myndum meirihluta borgarstjórnar á kjörtímabilinu spönnum breitt pólitískt litróf. Við höfum fjölbreytta sýn og ólíkar áherslur en það sem sameinar okkur eru hagsmunir og lífsgæði borgarbúa og skynsamleg uppbygging Reykjavíkur til framtíðar. Að því marki stefnum við í þessum sáttmála.“

Þá var greint frá verkaskiptingu og formennsku í helstu ráðum og nefndum:

  • Borgarstjóri: Dagur B. Eggertsson
  • Formaður borgarráðs: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
  • Forseti borgarstjórnar: Dóra Björt Guðjónsdóttir fyrsta árið en Pawel Bartoszek tekur svo við
  • Umhverfis- og heilbrigðisráð: Líf Magneudóttir
  • Formaður Mannréttinda- og lýðræðisráðs: Dóra Björt Guðjónsdóttir
  • Skóla- og frístundaráð: Skúli Helgason
  • Velferðarráð: Heiða Björg Hilmisdóttir
  • Skipulags- og samgönguráð: Sigurborg Ósk Haraldsdóttir
  • Menningar- og íþróttaráð: Pawel Bartoszek fyrsta árið en Hjálmar Sveinsson tekur svo við