Höfuðstöðvar Nýherja.
Höfuðstöðvar Nýherja.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Vænting hf., stærsti hluthafinn í Nýherja, seldi í dag rúmlega 3% hlut í Nýherja. Eftir viðskiptin á Vænting 17% hlutafjár. Kaupandi bréfanna er Fiskveiðihlutafélagið Venus hf. sem á 6,6% í Nýherja eftir kaupin.

Félögin tvö eru í eigu sömu aðila og sitja þeir Kristján Loftsson og Árni Vilhjálmsson í stjórnum félaganna.