Væntingar landsmanna til efnahagsástands næstu sex mánaða hafa batnað samkvæmt nýjum tölum Gallup. Mat á núverandi ástandi lækka þó samkvæmt umfjöllun greiningardeildar Íslandsbanka .

Væntingavísitala Gallup hækkaði um 17 stig milli mánaða og mælist nú í 61,5 stigum. Í aprílmánuði stóð vísitalan í 44,4 stigum en hún hafði ekki mælst lægri í meira en níu ár.

Allar undirvísitölur hækkuðu á milli mánaða fyrir utan mat á núverandi ástandi. Í febrúar mældist undirvísitalan í 82,5 stigum samanborið við 16 stig núna í maí. Væntingar til næstu sex mánaða hækkaði um 33 stig milli mánaða. Landsmenn virðast því telja að faraldurinn sé á undanhaldi og að flest horfi til betri vegar á næstu misserum.

Heildarvelta innlendra greiðslukorta hefur dregist saman um tæp 27% miðað við sama tíma í fyrra. Ferðatakmarkanir og samkomubann munu líklega hafa mikil áhrif á neyslu á næstu mánuðum en neysla er almennt mjög viðkvæm fyrir óvissu.

Greiningardeildin býst því við 5,5% samdrætti í einkaneyslu á þessu ári eftir mikinn vöxt undanfarin ár en einkaneysla hefur vegið um helming af vergri landsframleiðslu síðustu ár.