Ísbúðin Valdís hagnaðist um tæplega 38,6 milljónir árið 2015. Hagnaður ársins 2014 var ívið meiri eða um 40 milljónir árið 2014.

Eigið fé Valdísar í lok árs 2015 nam 39,5 milljónum samanborið við tæplega 41 milljón í lok árs 2014.

Handbært fé félagsins í árslok 2015 nam 12 milljónum, en í lok ársins 2014 nam handbært fé í árslok tæpum 24 milljónum.

Ísbúðin er í eigu Gylfa Þórs Valdimarssonar sem á 70% hlut og Önnu Svövu Knútsdóttur leikkonu sem á 30% hlut í fyrirtækinu.

Stjórn Valdísar leggur fram tillögu um arðgreiðslu til hluthafa á aðalfundi félagsins.