Valdís Eyjólfsdóttir er nýráðin verkefnastjóri á fyrirtækjasviði Íbúðalánasjóðs en hún er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Einnig er hún með verðbréfamiðlarapróf frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað sem sérfræðingur í útibúaþjónustu Íslandsbanka og sem hópstjóri fyrirtækjaaðgerða og sérfræðingur í verðbréfavörslu Glitnis.