Brim hf. sem minnihluta hluthafi í Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum með 32,88% eignarhlut fer fram á að fulltrúar meirihlutans í bíði niðurstöðu yfirstandandi Hlutafélagaskrár á gjörðum þeirra á aðalfundi 6. júlí áður en boðað verði til hluthafafundar.

Deilur hafa staðið yfir síðan aðalfundurinn var haldinn um hver væri réttkjörin stjórn. Hlutafélagaskrá er úrskurðaraðili í svona málum samkvæmt hlutafélagalögum.

Segja stjórnina umboðslausa

Segir í yfirlýsingunni að fulltrúar meirihlutans hafi stigið fram í fjölmiðlum um helgina og lýst því yfir að farið yrði fram á að stjórn, sem ekki lengur hefði umboð til að starfa fyrir hönd félagsins, boði til nýs hluthafafundar þar sem kjósa ætti nýja stjórn yfir félagið.

„Fulltrúar minnihluta hluthafa mótmæla þessu harðlega. Niðurstaða fyrra stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins 6. júlí sl. var fullkomlega lögmæt og aðeins á eftir að varpa hlutkesti um það hver tekur sæti sem fimmti stjórnarmaður félagsins í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga,“ segir í yfirlýsingu Brims.

„Það er mikilvægt að forðast valdníðslu og virðingarleysi gagnvart lýðræðislegum kosningum. Heppilegast væri að fulltrúar meirihlutans með Harald Gíslason í broddi fylkingar  sættu sig við niðurstöðu hins fyrra stjórnarkjörs, þrátt fyrir að niðurstaðan hafi ekki verið þeim þóknanleg, svo réttkjörin stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. geti hafið störf hið fyrsta með hagsmuni félagsins, starfsmanna og annarra sem því tengjast að leiðarljósi. Slík niðurstaða er sanngjörn fyrir alla hluthafa, ekki bara meirihlutann.“