Valgeir M. Baldursson, forstjóri Skeljungs hefur ákveðið að láta af störfum í kjölfarið á breytingum á skipulagi félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skeljungi. Breytingarnar á skipulagi koma í kjölfarið á stefnumótun stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins.

Breytingin felst í því að í stað þess að íslenski og færeyski hluti Skeljungs séu reknir eins og tvö aðskilin fyrirtæki, verður nú litið á alla samstæðuna sem eina heild. Einn forstjóri mun leiða framkvæmdastjórn félagsins. Skipulagið mun byggja á þremur rekstrarstoðum; Færeyjum, Íslandi og þróun, þ.m.t.  alþjóðasölu. Stoðsvið verða m.a. fjármál, samskipti og innkaup að því er segir í tilkynningunni.

Í tilkynningunni segir að breytingin sé þáttur í því að innleiða nýja stefnu Skeljungs sem leggur aukna áherslu á þróun og framrás félagsins. Markmiðið með breytingunni er að stytta boðleiðir, einfalda og auka skilvirkni við ákvarðanatöku og efla þannig sókn félagsins í átt að nýjum mörkuðum.

Þá kemur enn fremur fram að Valgeir hafi tilkynnt stjórn að hann gefi ekki kost á sér í starf forstjóra í breyttu skipulagi. Hann hefur boðist til að starfa með stjórninni að undirbúningi breytinganna þar til nýr forstjóri yfir breyttu skipulagi hefur verið ráðinn og vera honum innan handar í framhaldinu.

Ekki er gert ráð fyrir að breyting þessi muni hafa umtalsverð áhrif á afkomu Skeljungs til skamms tíma. Hins vegar er búist við að til lengri tíma muni samlegðaráhrif leiða til lægri kostnaðar, með aukinni samvinnu Færeyja og Íslands.

Í tilkynningunni segir Valgeir M. Baldursson, fráfarandi forstjóri Skeljungs:

„Þegar ég kom til Skeljungs fyrir átta árum síðan stóðum við frammi fyrir miklum áskorunum í rekstri og starfsemi félagsins. Með samstilltu átaki frábærs starfsfólks tókst okkur að koma félaginu í gegnum þær á afar árangursríkan hátt. Nú er rekstur félagsins mjög góður og félagið á góðum stað fyrir þau verkefni sem framundan eru. Með nýju skipulagi og stefnuáherslum er hins vegar kominn tími á nýjar áskoranir fyrir mig og að aðrir taki við taumunum hjá Skeljungi."

Þá segir Jón Diðrik Jónsson, stjórnarformaður Skeljungs:

„Valgeir hefur leitt Skeljung í gegnum mikla umbreytingatíma og nú síðast töku hlutabréfa í Skeljungi til viðskipta í Kauphöllinni. Árangur Valgeirs við stjórnvölinn hefur verið óumdeilanlegur. Þá hefur Valgeir lagt grunninn að nýrri stefnu Skeljungs, sem skipulag þetta byggir á, og stjórn telur að muni varða leiðina í átt að nýjum sigrum félagsins. Stjórn Skeljungs þakkar Valgeiri kærlega fyrir sín góðu störf í þágu Skeljungs og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.

Framundan eru spennandi tímar hjá Skeljungi. Umhverfi félagsins tekur stöðugum breytingum og er það stefna Skeljungs að vera leiðandi í þróun á nýjum lausnum fyrir viðskiptavini sína í þeim umbreytingum sem munu eiga sér stað á næstu árum og áratugum."