Valgeir Bjarnason hefur verið ráðinn svæðisstjóri Wow air í Mið-Evrópu með aðsetur í Berlín.

Í tilkynningu frá Wow air kemur fram að Valgeir verði fulltrúi Wow air á meginlandi Evrópu og mun sjá um kynningu á vöru og þjónustu Wow air, halda utan um samskipti við ferðaskrifstofur, finna ný viðskiptatækifæri ásamt ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum.

Valgeir starfaði áður sem afgreiðslustjóri hjá Flugfélagi Íslands á Reykjavíkurflugvelli, deildarstjóri tekjustýringar og áætlunargerðar hjá Flugfélagi Íslands og sem forstöðumaður tekjustýringar hjá Iceland Express. Valgeir hefur starfað hjá Wow air frá stofnun félagsins, fyrst sem forstöðumaður á sölusviði og núna sem svæðisstjóri Mið-Evrópu.