Valgerður Bjarnadóttir var á Alþingi í dag kjörin aðalmaður í bankaráð Seðlabanka Íslands.

Hún var kjörin í stað Sigríðar Ingu Ingadóttur, sem sagði sig nýverið úr bankaráði.

Nafn Valgerðar var lagt fram á Alþingi í dag og kom ekkert mótframboð. Hún var því kjörin án atkvæðagreiðslu.

Valgerður er varaþingmaður Samfylkingarinnar.