Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að bjóða sig fram til formennsku í flokknum á komandi flokksþingi í janúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem hún var að senda fjölmiðlum. Hún segir þar þörf á endurnýjun í íslenskum stjórnmálum. Valgerður tók við formannsstólnum nýverið þegar Guðni Ágústsson sagði af sér formennsku.

Tilkynning Valgerðar er svohljóðandi:

„Það eru umbreytingar í íslensku þjóðlífi um þessar mundir. Í hönd fara tímar þar sem samfélagið verður byggt upp á nýjan leik.

Ég hef um ríflega tveggja áratuga skeið starfað í stjórnmálum og helgað öllum mínum kröftum í að vinna að framgangi góðra mála. Ég hef hins vegar lýst þeirri skoðun minni, og ítreka hana hér, að þörf sé á endurnýjun í íslenskum stjórnmálum.

Ég vil fyrir mitt leyti fylgja eftir þessari sannfæringu minni um nauðsynlega endurnýjun. Því hef ég ákveðið að sitja ekki lengur sem formaður Framsóknarflokksins en til næsta flokksþings framsóknarmanna sem haldið verður í janúarmánuði næstkomandi. Þar verður því kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins. Ég mun hins vegar áfram sitja á Alþingi og vil gera mitt til að vinna þjóðinni og flokknum allt það sem ég tel að til heilla horfi."