Norður Kóreska flugfélagið Air Koryo hefur í fjórða sinn verið kosið versta flugfélag í heimi. Flugfélagið er eina fyrirtækið sem hefur fengið eina stjörnu í tímariti SkyTrax. Á listanum eru rúmlega 180 flugfélög og er Air Koryo afgerandi verst.

Samkvæmt CNBC hafa sumir farþegar lýst yfir óánægju með listan. Félagið er vissulega með umdeilda þjónustu, sem er lituð af pólitískum áróðri Norður Kóreskra stjórnvalda, en öryggi farþegar er alltaf í fyrirrúmi. Félagið á fjórar flugvélar, sem fljúga millilandaflug, sem voru allar keyptar árið 2008.