Samkeppniseftirlitið leggur 500 milljóna sekt á Valitor Samkeppniseftirlitið hefur lagt hálfs milljarðs króna sekt á kortafyrirtækið Valitor, en í niðurstöðunni segir að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Einnig er Valitor sagt hafa brotið gegn skilyrðum sem fyrirtækið hafði skuldbundið sig til þess að virða.

Mál þetta varðar markaðinn fyrir færsluhirðingu. Færsluhirðing felst í þeirri þjónustu við söluaðila (t.d. verslanir) að veita þeim heimild til að taka við greiðslum með greiðslukortum, taka við færslum þeirra og greiða þeim út þegar korthafar greiða reikninga sína. Valitor er markaðsráðandi á þessum markaði og einnig starfa á markaðnum Borgun hf. og Kortaþjónustan.

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að í lok árs 2007 hafi Valitor viðurkennt víðtæk brot á samkeppnislögum og samþykkt að greiða stjórnvaldssekt sem nam 385 milljónum króna. Einnig hafi fyrirtækið fallist á að hlíta skilyrðum sem ætlað var m.a. að koma í veg fyrir að fyrirtækið myndi á ný misnota markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem ætlað var að valda keppinauti samkeppnislegu tjóni.

Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar kæru Borgunar og nokkrar ábendingar vegna háttsemi Valitors á markaði fyrir færsluhirðingu. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt er í dag kemur fram Valitor hafi brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði samþykkt að hlíta í sáttinni frá 2007. Í því fólst m.a. að Valitor misnotaði trúnaðarupplýsingar um keppinauta sína í færsluhirðingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslukorta hér á landi. Þessi skilyrði voru viðbrögð við alvarlegum brotum Valitors og voru sett til að vinna gegn frekari brotum fyrirtækisins. Segir í tilkynningunni að það sé í eðli sínu afar alvarlegt að fyrirtæki brjóti skilyrði af þessum toga sem það hafi skuldbundið sig til þess að virða.

Ítrekuð brot og framin af ásetningi

Brot Valitors fólust einnig í svonefndri undirverðlagningu. Í þeirri háttsemi felst í aðalatriðum að markaðsráðandi fyrirtæki selur vörur undir kostnaðarverði. Í viðskiptum færsluhirða og söluaðila er gerður greinarmunur á annars vegar debetkortum og hins vegar kreditkortum. Er verulegur munur á meðferð þessara korta í viðskiptum og uppgjöri vegna þeirra. Leiðir þetta til þess að verðlagning færsluhirða gagnvart söluaðilum vegna þessara tveggja kortategunda er mismunandi.

Háttsemi Valitors fólst, að því er segir í tilkynningunni, í því að fyrirtækið verðlagði þjónustu sína í færsluhirðingu vegna debetkorta undir breytilegum kostnaði á árunum 2007 og 2008. Með þessari undirverðlagningu var félagið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónusta. Var umfang þessarar undirverðlagningar verulegt og beitt m.a. gagnvart öflugum smásölum.

Brot Valitor eru í tilkynningunni sögð ítrekuð og telur Samkeppniseftirlitið að þau hafi verið framin af ásetningi. Sé því um mjög alvarleg brot að ræða og telur Samkeppniseftirlitið hæfilegt að Valitor greiði 500 milljónir króna í sekt.

Hagnaður Valitor í fyrra nam 809 milljónum króna. Eigið fé fyrirtækisins var í árslok 2012 8,1 milljarður og handbært fé nam 6,7 milljörðum króna. Eigendur Valitor eru Arion banki með 61% og Landsbankinn með 38%.