Valitor hefur selt dótturfélag sitt í Danmörku, Valitor A/S, áður AltaPay A/S, til Christian Rasmussen. Umræddur Christian var einn af stofnendum AltaPay og stýrði alrásarþjónustu Valitor þar til hann hætti störfum í árslok 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor.

Valitor keypti AltaPay árið 2014 og var það rekið undir merkjum Valitor frá upphafi síðasta árs. Nýr eigandi tekur yfir öll viðskiptasambönd en starfsemin verður rekin undir merkjum AltaPay á nýjan leik. Söluverðið nú er trúnaðarmál.

„Í upphafi árs hófum við endurskipulagningu Valitor í því augnamiði að styrkja kjarnastarfsemina. Það er mér mikið ánægjuefni að nýjasti áfanginn í þeirri vinnu felur í sér að starfsemi okkar í Danmörku fær nýjan eiganda sem hefur sterk tengsl við alrásarþjónustu Valitor. Aðkoma Christian og þekking hans og ástríða fyrir starfseminni eru afar góð tíðindi fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, starfandi forstjóri Valitor.

„Valitor og AltaPay hafa ætíð haft góðan samhljóm og lagt áherslu á tækni, einfaldleika og sérþekkingu sem eflir persónulega upplifun viðskiptavina,” er haft eftir Christian í tilkynningunni. „Við erum ennfremur ánægð með að Valitor mun áfram veita okkur þjónustu við færsluhirðingu og styðja þannig við vöxt viðskiptavina okkar á lykilmörkuðum.“