Samfélagssjóður Valitor hefur veitt Hjálpræðishernum og Geðhjálp hvoru um sig eina milljón krónur í fjárstyrk sem ætlað er til að styrkja starf þeirra um jólin. Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor og Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Valitor, afhentu fulltrúum samtakanna  styrkinn.

Fram kemur í tilkynningu að hjálparstarfið hafi lengi gegnt mikilvægu hlutverki, en þó er þörfin fyrir aðstoð þeirra sérstaklega brýn um þessar mundir.

Á myndinni eru frá vinstri: Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Valitor, Björt Ólafsdóttir, formaður Geðhjálpar, Sigurður H. Ingimarsson og Paul-William Marti frá Hjálpræðishernum og Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.