Valitor varar eindregið við að gefa upp kortaupplýsingar í tengslum við falsfréttir er lofa skyndigróða með fjárfestingu í Bitcoin. Valitor bendir á að síðustu daga hafi falsfréttir sem tengjast fjárfestingasvikum hafa gengið á helstu samfélagsmiðlum, sérstaklega Facebook.

Mikilvægt sé að hafa í huga áður en kortaupplýsingar eru gefnar upp að „fjárfestingatækifæri“ sem hljóma of vel til að vera sönn séu það líklega ekki. Því varar kortafyrirtækið einstaklinga við að falla fyrir slíkum gylliboðum.

„Þar er m.a. látið sem þekktir Íslendingar segi frá því í viðtali hvernig þeir eiga að hafa hagnast á Bitcoin viðskiptum. Í framhaldinu eru lesendur hvattir til þess að leggja fé inn á ákveðna fjárfestingu með greiðslukortum sínum. Þessar falsfréttir hafa birst í nokkrum útgáfum. Svikin eru það vel útfærð að jafnt reyndir sem óreyndir fjárfestar eiga erfitt með að átta sig á að eitthvað óvenjulegt sé á seyði, því vissulega eru fjölmargir aðilar að höndla með Bitcoin og aðrar rafmyntir á lögmætan hátt," segir í tilkynningu frá Valitor.

Mikilvægt sé í þessum málum sem öðrum að korthafar staldri við þegar þeir hyggjast gefa upp kortaupplýsingar sínar og kanni t.d. hver söluaðilinn er í raun. Í sumum tilvikum séu svikararnir að nýta sér staðfestingarkóða í gegnum Vottun Visa með sms. Í kó'anum kemur fram hvaða færslu er verið að biðja um staðfestingu á, söluaðili, upphæð og gjaldmiðill. Sé færsla staðfest hjá söluaðila með slíkum staðfestingarkóða þá sé óvist að réttur til endurkröfu sé fyrir hendi. Því miður séu dæmi um að korthafar hafið tapað háum upphæðum vegna svika af þessum toga.