Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í dag Valtý Sigurðsson, forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins, í embætti ríkissaksóknara frá og með 1. janúar 2008. Valtýr tekur við embættinu af Boga Nílssyni sem mun láta af embætti um áramótin.

Aðrir umsækjendur um embættið voru:
Egill Stephensen, saksóknari við embætti ríkissaksóknara
Guðjón Ólafur Jónsson, hæstaréttarlögmaður
Jón H. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi
Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari við embætti ríkissaksóknara.